rok úti....sumarið er búið
búið að vera ágætis sumar, var náttúrulega í tveimur vinnum og
svo í fjarnáminu en náði samt líka að skemmta mér pínu....kíkjum á
það!

byrjaði á kórferð í júní (vorum ekki alltaf svona fúlar!)

ég og erla maría við jökulsárlón...hell yes
Svo kom bara eitthvað voða dull tímabil sem einkenndist af
mikilli vinnu (sérstaklega í bíóinu) og stærfræði
Loksins fór eitthvað skemmtilegt að gerast og fór á fyrsta djamm
sumarsins (eða síðan í maí) þegar Hrefna sæta hélt uppá afmælið
sitt



Svo kom þetta fræga vesturbæjar/kvennópartí helgina eftir
það...

Svo byrjaði ég að læra fyrir alvöru, fór á Sigur Rós í
millitíðinni,lærði alla verslunarmannahelgina (þegar ég var ekki að
vinna), tók síðan prófið og fékk 7 
Fórum svo ég Harpa, Ragga og Þorgerður til Köben 12.
ágúst




geggjuð ferð með geggjuðu liði
Á laugardaginn var menningarnótt og á bara eina mynd þaðan sem
ég stal
haha!
En ég fór semsagt í bæinn...kom heim um 5 og svo klukkan 13 tók
tvöföld vakt í bíóinu við...var semsagt frá 13:20-24...fyrri
helmingurinn einkendist af myglu og sá síðari af
svefngalsa...hressandi!!
Þetta var líka sumar þriggja hárlita:
másbrán (músabrúnn)
"sunny blonde"
og svo loksins
mahóníbrúnn!
Er núna búin að vera dökkhærð í rúma viku og var stoppuð í
tollinum....ekki hinar stelpurnar
kenni hárinu um!
Er samt að fíla það...
annars byrjaði skólinn í dag og ég fíla það svona
ágætlega...finnst ég bara vera að drepa tíma þar til í janúar þegar
ég flyt út....
var líka frekar smooth og svaf yfir mig og missti af
skólasetningunni...frábært auður
þarf að gera milljón hluti næstu vikur, á eftir að fá helling af
meðmælum fyrir skólann úti, byrja að læra á bíl, sækja um leyfi í
nóvember þegar ég fer út að skoða skólann og svo þarf ég að ná í
skattkortið mitt!
helvítis skattkort
allavega farin út með Argus
sjáumst!